12.02.24
Fréttir
Hafnargata 40B til sölu, íbúðarhús og bílskúr
Múlaþing óskar eftir tilboðum í eignina Hafnargötu 40 B á Seyðisfirði.
Um er að ræða íbúðarhús og bílskúr sem seljast í sitthvoru lagi. Hafnargata 40 B er einlyft timburhús á steyptum kjallara byggt árið 1929. Stærð húss er 77 m2 að grunnfleti. Bílskúrinn er 24 m2 og byggður árið 1979.